Loksins er ég komin í sumarfrí eftir alveg viðbjóðslega langa
prófatörn. Mér hefndist alveg hrikalega fyrir að skrópa lokaprófinu
og veiktist að sjálfsögðu fyrir sjúkraprófið. Sem betur fer var
þetta bara sólarhringspest og ég komst í prófið, en ástandið var
tvísýnt um tíma.
Veðrið er búið að vera alveg yndislegt og til að komast í
sumarfílinginn ákvað ég að skella mér út að hlaupa. Ekki veitti af
eftir að hafa hlaðið á bumbuna af endalausu pítuáti í allan vetur.
Ég ákvað að taka hundinn með til að hafa smá hvatningu en komst
fljótlega að því að hann var töluvert verr á sig kominn en ég.
Akureyringar máttu því sjá unga dömu á skokkinu með slefandi hund í
eftirdragi
Það er ekki nema vika þangaðtil ég fer suður að kíkja á krúttuna
mína með bumbuna og ég get ekki beðið!

Með í för verða
kynfræðslubækur sem ég ætla með í vinnuna hans Bjarna. Þar ætla ég
að halda fræðsluerindi handa þeim mönnum sem komu að símtali sem ég
fékk um daginn. Erindið var að komast að því með hverju konur
pissa!

Öllum sem telja sig þurfa á slíkri fræðslu að halda
er velkomið að skrá sig hérna á síðunni og ég mun svipta hulunni af
leyndardómnum!