04.04.2006 22:44:24 / hlandrea

Risaeðla í tölvunni minni....

Í mínum eyrum hljómar "Thesaurus" í Microsoft Word miklu meira eins og risaeðlutegund heldur en samheitaorðabók! :haha:
Jakobar skrifaði
Já! þetta er risaeðla...! Hún borðar alla stafina í word ef maður passar ekki að gefa henni geit eins og í Jurassic Park!
Andrea skrifaði
Haha...það er kannski ástæðan fyrir því að mér gengur ekkert í ritgerðarvinnunni, helvítið hún Thesaurus borðar allt jafnóðum og ég skrifa það!=)
Sísí skrifaði
hhh hvað ég er fegin að það sé komin góð og gild ástæða fyrir þessari erfiðu fæðingu á þessari helv... ritgerð! Ætli Margrét taki það ekki sem góða afsökum ef ég segi bara að ég sé ekki búin með ritgerðina þar sem risaeðlan í tölvunni minni hafi borðað öll orðin :)
Andrea skrifaði
Margrét tekur þessu örugglega gildu enda er hún svo létt og líbó týpa...ööö =) Þetta tekur við af hundunum sem átu heimaverkefnin áður en allir áttu tölvur, nú eru það helvítis risaeðlurnar í Ms word!=)
Jakobar skrifaði
Gee, you know that information...really would ve been more useful to me YESTERDAY!!!! Ég átti aldrei hund eða lítil systkyni sem borðuðu eða eyðilögðu heimaverkefni :( Nota þetta næst... spurning hvort danirnir séu jafn líbó týpur og Margrét :P
Andrea skrifaði
Hahaha....þú veist ekki hvað þú hefur það gott þarna úti!=)
Anna Sigga í Nýja Sjálandi skrifaði
Ég var búin að gleyma hvað það getur verið pirrandi að gera heimaverkefni því það er svo ágætt að vera í útlandinu múhaha.. Ég myndi reyndar trúa Skottu til að éta heimaverkefni fyrst hún getur sótt gólfkúlur eins og ekkert sé eðlilegra fyrir hund :) Allavega erum við í Nýja Sjálandi á endlaust stórum húsbíl og með lítið sætt kríli í farteskinu! Knúsknús og kossar ;)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.