11.07.2006 14:27:59 / annska

Svo kom löggimann og hirti hann og stakk honum beint oní rassvasann!

policeNóttin í nótt einkenndist af einstaklega litlum svefni og mikilli ógleði. Í morgun átti ég svo tíma í mæðraskoðun og fór út í bíl tætt og þreytuleg. Ég var að sjálfsögðu á seinustu stundu eins og alltaf og ekkert mátti útaf bregða ef ég ætti að ná tímanum. Þegar ég var komin rétt rúmlega hálfa leið stoppaði löggan mig. Löggimann spurði um ökuskírteini og sagði mér að þetta væri bara reglulegt eftirlit. Ég að sjálfsögðu á seinustu stundu mátti ekki beint vera að þessu. Lögginn skoðaði ökuskírteinið mitt og horfði svo á mig í smá stund og sagði svo: ,,þú ert nú ansi þreytuleg, hefurðu verið að drekka?" Þessu átti ég ekki von á og fór að hlæja, honum var ekki skemmt og sagði mér að ölvunarakstur væri ekkert til að skopast með! Þegar ég svo sagði honum að það væri nú yfirleitt ekki talið hollt að drekka á 8 mánuði meðgöngu áttaði hann sig á ástandi mínu og leyfði mér að halda áfram för minni. Þegar ég kíkti á mig í speglinum áttaði ég mig alveg á því af hverju löggimann spurði, ég var rauð í augunum, tuskuleg og hvítari í framan en Oddskarð er á snjóþungum degi! Ég lít sko greinilega ekki vel út þessa dagana fyrst löggan er farin að stoppa mig og gruna mig um ölvunarakstur á þriðjudagsmorgnum! ;)

Nanna skrifaði
Hahahaha.... þetta er náttlega bara fyndið... Þú ert svo endalaust heppin ;)
Benni skrifaði
Ljóðmæld og falleg lýsing á annars þreyttri dömu :)
Pálína skrifaði
snilldin ein !!! Náttla bara fyndið
Bjarki Þorl. skrifaði
Ég á nú soldið erfitt að ímynda mér þig eitthvað tuskulega þannig að ég held að þessu löggumaður hafi verið á vakt alla nóttina og farinn að vera eitthvað sibbinn og ekki séð skírt. Ps. Vonandi sjáumst við fljótlega, allt of langt síðan við höfum hist. BÆBÆ sæta sæta bumbustelpa.
sigurlaug skrifaði
Snildin ein...krúttið mitt :) Já ölvuð ófrísk kona við stírið lofar ekki góðu hehehehe ;)
Anna Sigga skrifaði
Bjarki: Ég er algjörlega á því að við þurfum að fara að hittast bráðlega! Ég sakna þín ægilega mikið! Knús til SÆTA DJ heheh ;) Sigurlaug: enda lét ég þig bara um að keyra í gær þegar við hittumst, ég vildi ekkert tefla í neina tvísýnu og láta lögguna stoppa okkur á leiðinni í kveldmat ;)
erna skrifaði
hehehehehe snilld...:)
Steinunn skrifaði
hehehehe já það er gaman að þessu...spruning hvort við systur förum í brunkumeðferð til að hressa okkur við:)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.